top of page

Stofna samtök um bætta heilsu hafsins



Á nýliðinni Arctic Circle ráðstefnunni voru stofnuð samtökin Hafbjörg - Samtök um bætta heilsu hafsins. Stofnendur samtakanna eru stofnanir og fyrirtæki sem með einum eða öðrum hætti koma að rannsóknum, þróun eða framgangi haftengdra lausna tengdum sjálfbærni og loftslagsmálum.


Hafið er óaðskiljanlegur hluti loftslagsins og sem slíkt fer það ekki varhluta af þeim neikvæðu áhrifum sem loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa á vistkerfi. Rúmlega fjórðungur alls útblásturs á koltvísýringi endar í hafinu og veldur súrnun. Hafið tekur til sín meira en 90% af þeirri hitaaukningu sem orðið hefur í heiminum af völdum gróðurhúsaáhrifa. Nýlegar fréttir um að mikil og hröð súrnun sjávar við Ísland hafi komið á óvart og að loðnan leiti í auknum mæli í áttina til Grænlands eru meðal fjölmargra atriða sem benda til hnignandi ástands hafsins í kringum Ísland. Þrátt fyrir þetta er ekki minnst á hafið, eða áhrif loftslagsbreytinga á hafið, í Parísarsáttmálanum - mikilvægasta alþjóðasáttmála um viðbrögð við loftslagsbreytingum.


Tilgangur Hafbjargar er að auka vitund og þekkingu almennings og hagaðila á þeim hættum sem steðja að hafinu sökum loftslagsbreytinga og á tækifærunum á því að nýta hafið sem hluta af lausninni. Samtökin munu standa fyrir upplýsingafundum og viðburðum auk þess að gefa út fræðsluefni tengt ýmsum málefnum haftengdra lausna með það fyrir augum að stuðla að upplýstri umræðu og miðla þekkingu.


Í stýrihópi samtakanna eiga sæti Angel Ruiz Angulo, dósent í haffræði við Háskóla Íslands; Snjólaug Árnadóttir, forstöðumaður CLoCCS við Háskólann í Reykjavík, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, yfirmaður rekstrar hjá loftslagsfyrirtækinu Transition Labs, Íris Mýrdal Kristinsdóttir, verkefnastjóri rannsókna hjá Running Tide, Irene Polnyi forstöðumaður hjá Carbon to Sea Initiative, og Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri hjá Sjávarklasanum. Að auki kemur alþjóðlega samstarfsnetið Ocean Visions að samtökunum, en Ocean Visions er leiðandi aðili á heimsvísu við að stuðla að framgangi rannsókna á sviðum haftengdra lausna á loftslagsvandanum, og vinnur með helstu hafrannsóknarstofnunum heims á því sviði.


Hægt er að skrá sig á póstlista samtakanna á Hafbjorg.is, til að fá frekari upplýsingar um viðburði og verkefni.


Kommentare


bottom of page